Forsíða
Þjónusta
Fyrirtækið
Fróðleikur
Samstarfsaðilar
Helstu verkefni
Hafðu samband
 
 
  Hvað er Instabus?
Instabus er þekktasta BUS-kerfið í dag.  Það er í mikilli þróun og aukast möguleikar þess stöðugt.  Það er raflagnakerfi þar sem allar stofnlagnir að lömpum eða öðrum notendum sem nota rafmagn er lagt á hefðbundinn hátt, en kveikingar og stýringar eru lagðar á einum tölvustreng / instabus streng.  Instabus er staðlað raflagnakerfi fyrir evrópskan markað þar sem allir helstu raflagnaframleiðendurnir vinna saman. Þetta þýðir að hægt er að kaupa raflagnaefni eða stjórnbúnað frá öllum stærstu framleiðendum s.s. SIEMENS, GIRA, BUS-JAGER, BERKER, ABB og yfir 50 öðrum aðilum.

Af hverju að velja Instabus?
Ódýrari rekstrarkostnaður þar sem ljós eru aðeins kveikt með instabus þegar viðvera er höfð, ljós slökkna sjálfkrafa, að hluta eða af öllu leiti, ef utanaðkomandi ljós er nægilegt.  Hægt er að tengja aðra rekstrarþætti s.s. hita og loftræstingu inn á kerfið og minnka þannig rekstrarkostnað á þeim.

Minna raflagnakerfi þýðir minni reykur ef um bruna yrði að ræða.  Í Evrópu er mikið lagt upp úr þessu, þar sem nokkur slys hafa orðið þegar byggingar hafa fyllst af reyk við minni háttar bruna.

Hægt er að fylgjast með ástandi heillar byggingar eða hluta byggingar með litlu og meðfærilegu skjámyndakerfi sem tengist instabus, þar sem ástand kemur upp á skjái t.d. kveikt eða slökkt á skrifstofu, opinn eða lokaður gluggi.

Öryggisþætti byggingar er hægt að leysa með instabus þar sem skynjari kveikir ljós á daginn eða gerir viðvart um óæskilegar ferðir á næturnar.

Með instabus er hægt að hafa flókna ljósastýringu t.d. í fundarherbergjum eða ráðstefnusölum sem er auðvelt og ódýrt.

Allar breytingar innanhúss eru auðveldar í framkvæmd og ekki þarf að leggja nýjar raflagnir ef veggir eru færðir eða felldir niður.

FRAMTÍÐIN

Instabus er raflagnakerfi sem hefur verið við líði í ein 6-8 ár og eru sífellt fleiri framleiðendur að bjóða efni og tækjabúnað sem hægt er að tengja við instabus.
Það sem tryggir þróunina á þessu sviði er að allir framleiðendur eru búnir að samþykkja einn staðal og munu þróa hann í sameiningu.
Í dag eru að koma símkerfi, aðgangskerfi og fullkomin þjófavarnarkerfi viðurkennd af þýska VDS staðlinum sem er sá öruggasti í heimi. 
Miklu fjármagni hefur verið varið í þróun instabus og er það öruggt að slík kerfi koma til með að verða ráðandi í framtíðinni
.
 

 

 
 
 
 
 
 

Elmax ehf. - Flatahraun 29 - 220 Hafnarfjörður - Sími 5650848 - Netfang elmax@elmax.is