Forsíða
Þjónusta
Fyrirtækið
Fróðleikur
Samstarfsaðilar
Helstu verkefni
Hafðu samband
 
 
  Fyrir marga eru raflagnir og rafbúnaður bara eitthvað sem er lagt og sett í húsnæði og svo þurfi ekkert að hugsa um það meir fyrr en eitthvað fer að koma upp. Raflagnir og rafbúnaður er ekkert frábrugðinn öðrum hlutum, hann skemmist með tímanum og getur orðið hættulegur. Ekki er óalgengt að koma að rofa sem er búið að líma yfir vegna þess að ekki má kveikja því að "þá kemur hvellur og það slær allt út". Brotnir rammar, brotnir rofar eða tenglar. Allt þetta er nauðsynlegt að láta fagmenn líta á og skipta út eins fljótt og hægt er.

Rétt er að benda fólki sem er í vafa um raflagnir heimilisins á að taka rafmagnsprófið.

Raflagnir:
Raflagnir í gömlu húsnæði eldri en 50 ára ætti að láta yfirfara sé ekki búið að því síðustu árin. Þessar lagnir voru oft einangraðar með efnum sem með tímanum trosna og því rýrast einangrunargildi þeirra sem endað getur með útleiðslu eða skammhlaupi. Í því húsnæði sem er frá þeim tíma þegar gamla Ticino efnið var mikið notað 1970 - 1985, þetta með ál/stál römmunum er rétt að láta athuga og skipta út því tenglar í því húsnæði eru oftast ekki jarðtengdir.

Rafmagnstaflan:
Rafmagnstaflan er hjarta rafkerfisins í hverju húsi. Um hana fer allt rafmagn sem notað er á heimilinu. Öryggin í rafmagnstöflunni eiga að varna því að of mikið álag eða skammhlaup valdi tjóni. Í eldri töflum eru bræðivör sem skipta þarf um þegar þau springa en í nýrri töflum eru varrofar sem slá út við bilun eða of mikið álag. Gamlar og illa farnar rafmangstöflur geta verið hættulegar, ekki síst ef þær eru úr tré eða staðsettar inni í skápum þar sem nóg er um eldsmat. Í slíkum tilfellum er brýnt að láta löggiltan rafverktaka kanna ástand rafmagnstaflna og gera úrbætur áður en skaðinn er skeður. Bent skal á að í öllum rafmagnstöflum er mikilvægt að hafa skýrar og læsilegar merkingar sem sýna meðal annars hvaða öryggi og hversu sterk eru fyrir hvern húshluta.

Lekastraumsrofinn:
Eitt helsta öryggistæki rafkerfisins er lekastraumsrofinn. Ef útleiðsla verður í raflögn, t.d. vegna bilunar í jarðtengdu tæki, á rofinn að slá út og rjúfa allan straum. Lekastraumsrofi kemur ekki að tilætluðum notum nema raflögnin sé jarðtengd og kanna þarf reglulega hvort hann virki með því að ýta á prófhnappinn.

Rofar:
Á hverjum degi notum við ljósarofa til þess að kveikja og slökkva ljósin. Oft þarf að þreifa eftir rofum í myrkri. Þess vegna er afar brýnt að þeir séu vel festir, heilir og óbrotnir þannig að sem minnst hætta sé á að notandinn fái straum úr þeim. Rofar slitna með tímanum og sambandsleysi í þeim getur bæði verið óþægilegt og varhugavert. Nauðsynlegt er að fá löggiltan rafverktaka til að yfirfara rofa ef vart verður sambandsleysis eða ef þeir hitna mikið.

Innstungur (tenglar):
Við sækjum rafmagn fyrir þau tæki sem við notum í innstungur (tengla). Þær ættu að vera sem víðast í hverri íbúð, helst fleiri en ein í hverju herbergi. Innstungur þurfa að vera vel festar og tengiklær eiga að sitja tryggilega í þeim því að sambandsleysið getur valdið hita. Áríðandi er að skipta strax um brotin lok á innstungum til að varna því að heimilisfólk eða gestir komist í snertingu við rafmagn. Hægt er að fá innstungur með barnavörn og ýmsan annan búnað til að varna því að óvitar stingi hlutum í þær og skaði sig.

Hvað er Instabus? Instabus er hússtjórnakerfi sem er mjög vinsælt í dag. Instabus gerir notanda kleift að stjórna nánast öllu heimilinu frá einum stað hvort sem það er snertiskjár eða tölva. Hægt er að stjórna gluggatjöldum og það sem instabus hefur umfram önnur hússtjórnarkerfi í dag er að hægt er að stjórna gólfhita þar sem hitinn hefur verið lagður í gólfplötur. Lestu meira um Instabus smelltu hér.

Hvað er SCHRACK?
Schrack@Home, er algerlega ný hugsun í lagningu smáspennulagna. Hentar sérlega vel fyrir þá sem vilja geta breytt skipulagi íbúðarinnar einfaldlega. Lestu meira um SCHRACK smelltu hér.

 

 

 

 
 
 
 
 
 

Elmax ehf. - Flatahraun 29 - 220 Hafnarfjörður - Sími 5650848 - Netfang elmax@elmax.is