|
|
|
Hvað er SCHRACK?
Schrack@Home, er algerlega ný hugsun
í lagningu smáspennulagna. Notaður er CAT 6
skermaður strengur og skermaðir CAT5e tenglar
í allt, síma-, tölvu- og sjónvarpslagnir, ekki má
nota gegnumgangslagnir heldur ávallt stjörnulagnir.
Í smáspennutöflunni eru svo ADSL beinir,
sjónvarpsmagnari og símadeilir fyrir DIN
skinnu ásamt krosstengibretti líka fyrir DIN skinnu.
Síðan tengist viðkomandi tengill við réttan miðil
með tengiskottum, nákvæmlega eins og í tölvuskápum
hjá fyrirtækjum.
Kostir
SCHRACK.
Kostirnir eru ótvíræðir, færri tengla og
minni röralagnir þarf, sjónvarpsmagnarinn er minni þar sem
ekki þarf alltaf að magna upp allt kerfið eins og með gamla
sjónvarpskerfinu, Schrack@Home magnarinn stillir sig ávallt
þannig að merkin eru jafnsterk í öllum tenglum hvort sem
þeir eru í 5 eða 20 metra fjarlægð. Auðvelt er að fara
með myndina fram og til baka í kerfinu, hvort sem er frá
afruglara eða tölvu. Einnig er hægt að keyra
gervihnattasendingar inn. ADSL sjónvarpstenging liggur
sérlega vel við og svo mætti lengi telja.
Breytt er um stykki í Cat5e tenglinum eftir því sem
notagildið á að vera. Hægt er að fá stykki sem stungið er í
tengilinn t.d ef fólk vill setja upp videotökuvél í
barnaherberginu svokallaða barnapíu, þá er hægt að senda
myndina inn á sjónvarpskerfið og skipta bara um rás á
sjónvarpinu til að gá hvort að barnið sé vaknað eða að
gráta, einnig er hægt að tengja mynd dyrasíma inn á kerfið.
Einn enn kosturinn sem kerfið hefur er að hægt er að tengja
dvd spilara eða video í öðrum rýmum inn á þannig að hægt sé
að hofa á spilarann/videoið þótt það sé í hinum enda
hússins.
|
|
|